Við erum að fara til Rhodos!!!
Við förum út að morgni 5. júlí. Það er valkostur um að vera í eina eða tvær vikur. Þeir sem kjósa að fara í eina viku verða þá 5.-12. júlí og tvær vikur þá 5.-19. júlí.
Ef við miðum við 4 saman í íbúð þá kostar:
5.-12. júlí 66.890 kr.
5.-19. júlí 74.690 kr.
Innifalið í verðinu er flug, gisting, hálft fæði (morgunmatur og kvöldmatur), flugvallarskattar og rúta til og frá flugvelli.
Hótelið sem við verðum á heitir Hotel Forum og er þriggja stjörnu, nýuppgert hótel. http://verslun.heimsferdir.is/scripts/GT621Hotels.exe/HotelDetails?Hotel=8366&Seq=0
Þeir sem vilja aðeins vera í eina viku verða að verða að vera saman í herbergi og sömuleiðis þurfa þeir sem verða í tvær vikur að vera saman í herbergi.
Þar sem að talan 4 gengur ekki upp í allt þurfa einhverjir að vera 3 eða 2 saman í herbergi. Auðvitað er það samt dýrara. Sömuleiðis geta pörin sem vilja ekki ónæði verið 2 saman í herbergi.
| | 1 vika | 2 vikur |
| 4 í íbúð m/ 1 svefnh. | 66.890
| 74.690
|
| 3 í íbúð m/ 1 svefnh. | 70.490 | 81.990
|
| 2 í íbúð m/ 1 svefnh. | 76.990 | 96.490 |
| 1 í íbúð m/ 1 svefnh. | 99.490 | 139.890 |
Flogið er beint til Rhodos að morgni og heim til Íslands kl 7 um kvöldið.
Það þarf endanlega að svara Katrínu eða Lenu á fimmtudaginn svo hægt sé að senda listann á föstudaginn. Við þurfum að fá fullt nafn, símanúmer, kennitölu, heimilisfang, póstnúmer, stað og emil. Við þurfum líka að fá að vita hvort þið viljið vera í eina eða tvær vikur og með hverjum þið ætlið að vera með í herbergi.
Ef þið ætlið að taka með kærustur/kærasta sem ekki eru partur af þessum stóra hóp, sendið allar upplýsingar sömuleiðis um hann/hana.
Kíkið á www.heimsferdir.is
ATHUGIÐ þeir sem eru að ferðast eitthvað sjálfir útí heim en ætla að hitta okkur á Rhodos verða sjálfir að sjá um flug og hótel.
Hringið ef eitthvað er.
Lena Dís 696 8469 lenadisr(hjá
simnet.is
Katrín Ýr 866 8017 katrin.yra(hjá
gmail.com